Bloggfærslur mánaðarins, október 2021

Hvernig kem ég í veg fyrir kulnun?

Það er grundvallaratriði fyrir góð lífsgæði, góða líðan og góða heilsu að líða vel í vinnunni og vera ánægður. Við eyðum að meðaltali 200 dögum á ári í vinnunni sem eru u.þ.b. 1.600 klst miðað við 8 klst vinnudag. Í áratugi, mest allt lífið, eftir að við verðum unglingar eða fullorðin. Þannig eyðum við stórum hluta lífsins í vinnunni. Líðan í vinnu hefur síðan mikil áhrif á líf og líðan utan vinnu. Hver hefur ekki upplifað það að streitumikill vinnudagur hafi áhrif á kvöldið, jafnvel alla helgina?

En hvað er það eiginlega sem stýrir líðan okkar á vinnustað? Er það það sama og stýrir líðan okkar utan vinnu eða er það eitthvað annað? 

Svarið er einfalt. Það er það nákvæmlega sama sem stýrir líðan okkar í vinnu og sem stýrir líðan okkar utan vinnu: hvernig við hugsum, eða eigið viðhorf.

Í Biblíunni segir ,,As a man thinks in his heart, so is he“ Proverbs 23:7

Búdda sagði ,,The mind is everything. What you think, you become“.

Mahatma Gandhi sagði ,,A man is but the product of his thoughts, what he thinks, he becomes“

Sumir telja að það séu ytri aðstæður sem stýra líðan okkar, sem stýra heilsu okkar. T.d. að við þurfum hærri laun, betri yfirmann eða betri vinnuaðstæður til að geta liðið vel í vinnu. En sannleikurinn er sá að ytri aðstæður hafa lítið sem ekkert með þetta að gera, heldur það hvernig við sjáum og hugsum um okkar ytri aðstæður.* Hugurinn er allt, það sem við hugsum, erum við og verðum við og okkur líður, eins og við hugsum.

*(Hér er auðvitað ekki átt við aðstæður þar sem ofbeldi, einelti eða þvíumlíkt á sér stað á vinnustað – slíkt þarf alltaf að takast á við með utanaðkomandi aðstoð og í samræmi við lög og verkferla). 

Þú getur verið með tvo einstaklinga í sama starfi, með sömu menntun, sömu laun, sömu vinnuaðstæður, annar fer í kulnun, veikist og fer í leyfi en hinum gengur vel, líður vel og blómstrar í lífi og starfi.  Hvernig má það vera?

Svarið liggur í því hvernig viðkomandi hugsar og hvert viðhorf hans er. M.ö.o. hvað hann velur að fókusa á dag frá degi. Tökum dæmi um starfsmanninn sem fer í kulnun/veikindaleyfi. Á leið til vinnu hugsar hann t.d. svona:

,,Enn einn erfiður vinnudagurinn. Ég sem svaf svo illa í nótt, ég er að drepast úr þreytu. Ohhhh, yfirmaðurinn er svo leiðinlegur, það er svo mikið að gera og ég hef ekkert þrek til að takast á við þetta allt saman. Endalausir fundir, ég get þetta ekki, ég er alveg úrvinda, ég er að bugast“.

Hvernig ætli þessum einstaklingi líði í vinnu? Hann er reiður, dapur, þreyttur, orkulaus, kvíðinn, stressaður o.s.frv. Ef viðkomandi myndi hugsa svona dag eftir dag, jafnvel ár eftir ár, er nánast óhjákvæmilegt að viðkomandi endi í kulnun og/eða veikindum – enda skapar svona viðhorf viðvarandi streituástand sem brýtur niður varnir ónæmiskerfisins.

Tökum dæmi um hamingjusama starfsmanninn, hvað ætli hann sé að hugsa daglega, á leið til vinnu?

,,En dásamlegur dagur! Ég get ekki beðið eftir að mæta í vinnu og takast á við verkefni dagsins. Ég er svo lánsöm/samur að vinna á vinnustað með frábærum vinnufélögum, þar sem ríkir skemmtilegur húmor, samheldni og traust. Ég er ótrúlega þakklát/ur fyrir að geta unnið við það sem ég er menntaður/uð í, og/eða unnið við að hjálpa fólki, unnið þar sem ég get hreyft mig, o.s.frv.“

Hvernig líður þessum einstaklingi í vinnunni? Hann finnur fyrir tilhlökkun, gleði, ánægju, þakklæti, kærleika og jákvæðum krafti – líður vel og er heilbrigður. Honum gengur örugglega líka mjög vel í vinnunni því vellíðan leiðir til velgengni. Þessi starfsmaður er ekki að fara í kulnun né veikindaleyfi.

Við höfum alltaf val, val um það hvað við ætlum að fókusa á, á hverjum degi. Veljum rétt, veljum það sem er heilbrigt, fallegt og lætur okkur líða vel.

Er starfsfólkið þitt í vanlíðan, streitu og/eða neikvæðni? Eða má gera frábæran vinnustað enn betri? Undirrituð býður upp á örnámskeið/fyrirlestra um Vellíðan á vinnustað, nánari upplýsingar má finna hér (eða hafðu samband á sara@lausnir.is):

https://sarapalsdottir.is/namskeid-hopdaleidslur-og-fyrirlestrar/

 

Undirrituð er dáleiðari, orkuheilari, fyrirlesari og lögmaður.


Að lifa í kvíða er að lifa í fangelsi

Í mörg ár kvaldist ég vegna alvarlegs kvíða. Hann var misjafn, stundum var hann í formi neikvæðs sjálfsniðurrifs þar sem ég var ekki nógu góð, það sem ég gerði var ekki nógu gott, ég var ekki nógu mjó og allt sem ég sagði var ekki nógu vel sagt og aðrir voru líklega allir að dæma mig.

 

Þetta hef ég skilgreint sem ,,vægan“ kvíða – þótt nógu skaðlegur og alvarlegur hafi hann verið.

 

Þegar kvíðinn var sem verstur óttaðist ég stöðugt að eitthvað hræðilegt myndi gerast. Að ég væri komin með alvarlegan sjúkdóm, að eitthvað hræðilegt myndi koma fyrir son minn eða að ég yrði föst í þessum viðbjóðslega kvíða að eilífu. Sú hugsun var óbærileg. Stundum hrökk ég upp um miðjar nætur í kvíðakasti. Leið eins og ég væri að kafna og vanlíðanin var óbærileg.

 

Já, kvíði er viðbjóður. Kvíðinn rænir frá manni lífsgæðum, kemur í veg fyrir að maður geti verið maður sjálfur eða lifað því lífi sem maður vill lifa. Af því að maður er stanslaust hræddur. Hræddur við að vera ekki nóg, hræddur við að eitthvað slæmt gerist, ýmindaðar áhyggjur af öllu mögulegu og ómögulegu. Útkoman er sú að maður lifir sem hálfgerður skuggi af sjálfum sér. Að lifa í ótta er að lifa í fangelsi. Maður afplánar lífið. Þægindaramminn verður sífellt smærri eftir því sem kvíðinn stækkar – og það er eðli kvíðans að stækka fái hann að lumbra á okkur óátalinn.

 

Fyrir nokkrum árum ákvað ég að gera eitthvað róttækt í þessum kvíða – til að öðlast algert frelsi frá honum fyrir fullt og allt. Þetta byrjaði með 5 mínútna daglegri hugleiðslu, svo fór ég í dáleiðslu, svo lærði ég allt sem hægt var að læra um undirmeðvitundina og mátt hennar, lærði dáleiðslu, orkuheilun, las ótal bækur, rak mig á veggi, prófaði allt sem mér datt í hug að prófa. Tók mig mörg ár, blóð svita og tár – en þegar ég fann lausnina, fékk frelsið, varð hver einasta mínúta, hver einasti svitadropi sem fór í batann margfalt þess virði.

 

Ég hef fengið algert frelsi frá kvíða. Lífsgæðin sem fylgja því eru ólýsanleg. Ég er ég sjálf, geri það sem ég vil gera og nýt þess. Ég er frjáls frá því hvað öðrum finnst. Ég elska að vera með börnunum mínum í stað þess að vera með sífelldar áhyggjur af þeim. Ég er orkumikil alla daga, get stýrt hugsunum mínum og líðan minni og líður afar vel í líkamanum og í hjarta mínu. Ég er róleg, yfirveguð og glöð í nánast hvaða aðstæðum sem er. Ég gæti grátið af gleði yfir að hafa sigrað þennan fjanda sem kvíðinn er – og það er markmið mitt að hjálpa öðrum að öðlast þetta frelsi líka. Þess vegna lærði ég dáleiðslu og þess vegna bjó ég til námskeiðin ,,Frelsi frá kvíða“ – þar sem ég hef sett saman í helgarnámskeið (haldið á netinu) alla þá fræðslu, þjálfun, dáleiðslu og orkuheilun sem færðu mér það frelsi sem ég lifi í í dag. Eftir námskeiðið er þétt eftirfylgni sem grípur alla sem taka þátt – til að tryggja það að við höldum okkur við efnið, höldum áfram að tileinka okkur allt sem við lærðum á námskeiðinu í stað þess að fara aftur í sama farið.

 

Að lifa í kvíða er að lifa í fangelsi. Það er hægt að fá frelsi. Það er hægt að sigra kvíðann. Að eiga við kvíða er að eiga í stríði og þá er eins gott að hlaða vopnabúrið vel og taka stjórnina. Það er nefnilega þannig að við höfum vald yfir kvíða – ekki öfugt. Kvíðinn hefur bara vald yfir okkur þegar við gefum okkur honum á vald, þegar við óttumst hann. Er ekki kominn tími til að gera eitthvað í þessum kvíða?

Skráðu þig hér á næsta námskeið, 9-10 október n.k.:

https://sarapalsdottir.is/namskeid-hopdaleidslur-og-fyrirlestrar/

 

Eða hafðu samband í gegn um grúppuna mína á Facebook „Frelsi frá kvíða – ókeypis fræðsla og dáleiðslur“:

https://www.facebook.com/groups/frelsifrakvida

 

Þú getur byrjað strax í dag. Þú þarft ekki að gera þetta ein/n . Við getum gert þetta saman.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband