Skiptu út ótta fyrir kærleika og þakklæti

Undanfarna mánuði hefur heimssamfélaginu verið stýrt af ótta við COVID19. Vegna þess ótta er fólk tilbúið að láta frelsisskerðingar yfir sig ganga sem eru í reynd með ólíkindum. Ekki fara í frí. Vertu heima hjá þér. Ekki koma nálægt öðru fólki. Ekki fara í vinnuna. Ekki fara með barnið þitt í skólann. Ekki fara út að skemmta þér. Ekki ferma barnið þitt. Ekki fara á nammibarinn. Fólk er orðið logandi hrætt við annað fólk. Ekki hósta, einhver gæti haldið að þú værir með covid. 

 
Fólk er hrætt. Fólk er stressað. Fólk einangrar sig. Fólk dæmir aðra sem gera ekki eins og það. Fólk hneykslast á þeim sem eru ekki hræddir við veiruna og láta hana ekki stjórna lífi sínu. Fólk telur að þeir sem fari á nammibarinn eða í partý séu að skemma fyrir öllum hinum og “dreifa veirunni um allt samfélagið”. 
 
Stjórnvöld spila óttaleikinn vel og auka á óttann í samfélaginu. Stjórnvöld eru óttaslegin sjálf og bregðast við eins og þau telja að samfélagið vilji að þau bregðist við. Í sumar fékk þríeykið svokallaða fálkaorðuna fyrir “framlag í baráttu við Covid-19 faraldurinn”. Allir hrópuðu húrra og klöppuðu. Þríeykið fékk hálfgerðan ofurhetjustatus í samfélaginu fyrir að stöðva dreifingu með hörðum sóttvarnaraðgerðum. Fólk var innilokað heima hjá sér, börn fóru ekki í skóla eða leikskóla. Hvaða sigur var eiginlega unninn með því? Hver var eiginlega snilldin, maður spyr sig. 
 
Fjórum mánuðum seinna, erum við enn í nákvæmlega sömu sporum. Hvað í ósköpunum hefur áunnist í þessari meintu baráttu? Þetta er tapað stríð og þetta vita stjórnvöld. Það er engin leið að útrýma þessari veiru, hún er komin til að vera. Í stað þess að láta þetta ganga yfir sem hraðast og vernda sérstaklega þá hópa sem eru viðkvæmir eða í áhættu, er verið að lengja í hengingarólinni og draga “ástandið” á langinn, út í hið óendanlega. Á meðan eigum við að vera frelsisskert, atvinnulaus, hrædd, stressuð og einangruð. Enginn á að lifa eðlilegu lífi.  
 
Enginn vill fá þessa hryllilegu veiru sem hefur sett alheiminn á hliðina. Allir eru logandi hræddir. Fáir virðast átta sig á þeirri staðreynd, að því hræddari sem þú ert, því meiri líkur eru á að þú fáir veiruna. Því hræddari sem þú ert ef þú færð svo veiruna, því meiri líkur eru á að þú verðir alvarlega veikur, þurfir jafnvel að leggjast inn á spítala, fremur en að vera einkennalítill eða einkennalaus. En það er ekki veiran sem stýrir því, heldur óttinn sjálfur. 
 
Ótti er neikvæð tilfinning sem þó getur haft jákvæð áhrif fyrir okkur. Tilgangur óttans er að búa til streituástand í líkama og huga okkar, til að gera okkur í stakk búin til að forða okkur frá tímabundinni, skyndilegri hættu, eða berjast við hana. Streituhormón flæða um líkamann og blóðið pumpast í útlimina. Öll okkar orka fer í að verjast gegn hættunni eða flýja undan henni. Á meðan á þessu hættuástandi stendur stöðvast önnur eðlileg líkamsstarfsemi, t.d. melting, endurnýjun frumna og virkni ónæmiskerfisins. Þetta er í fínu lagi í stutta stund en þegar ástandið verður viðvarandi, skapar þetta mikla hættu. 
 
Streita, sem afleiðing ótta, slekkur þannig á ónæmiskerfinu. Hinni einu sönnu vörn sem við höfum, gegn þessari covid-veiru. Allt spritt veraldar hefur ekki roð við sterku og öflugu ónæmiskerfi. Samt segja stjórnvöld okkar helstu varnir vera spritt og einangrun. Þetta er rangt. Besta vörnin okkar er að styrkja ónæmiskerfið okkar. Það er vörn sem bítur. 
 
Því hræddari sem við erum, því meiri streita byggist upp innra með okkur og því veikara verður ónæmiskerfið okkar. Því veikara sem ónæmiskerfið er, því meiri líkur eru á að sýkjast af veirunni og í reynd hvaða veirum eða bakteríum sem er. Og þegar við höfum sýkst á annað borð, ef ónæmiskerfið okkar er veikt fyrir, er líkaminn okkar mun verr í stakk búinn til að berjast gegn veirunni. Það er ástæða þess að einstaklingar geti hrunið niður í kjölfar þess að fá fréttir af því að vera með covid. Ótti, hræðsla, kvíði og skelfing = slekkur á ónæmiskerfinu. Ótti og hræðsla er það versta og síðasta sem samfélag okkar þarf um þessar mundir. Hvert er Mótefnið? Kærleikur. Þakklæti. Vísindin hafa sýnt hversu jákvæð áhrif kærleikur og þakklæti hafa á virknina í ónæmiskerfinu okkar. Í hvert sinn sem óttinn lætur á sér kræla, hafna honum og sýna kærleik. Vera þakklát. Okkur líður eins og við hugsum. Þegar við hugsum um það sem við elskum mest, finnum við fyrir kærleika. Þegar við hugsum um allt það sem við höfum að vera þakklát fyrir, finnum við fyrir þakklæti. Þetta er æfing, en góð er hún. 
 
Með kærleika og þakklæti, 
 
Sara Pálsdóttir dáleiðari og heilari. 
 
Fleiri pistla og fróðleik má finna á facebook síðu minni.
 
Einnig á blog-síðu minni. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Það er ánægjulegt að lesa þína sýn á þessi mál, Sara. Ég er svo sammála þér þegar þú skrifar um kærleikann og jákvæðnina, við megum ekki láta þessa erfiðu tíma rífa það allt niður. Ég hef haft mikið gagn af því að kynna mér andlega speki og dulræn málefni eins og þú. Þar er að fá viðspyrnuna gegn allskonar svona áföllum eins og kóvíðkreppunni. Fólk fyrr á öldum gekk í gegnum þetta sama og getur kennt okkur svo margt. Það er svo mikil þversögn í þessu, að ónæmiskerfi mannsins þrífst á snertingu, kærleika og nánd, en veslast upp án þess, og þetta er það sem kóvíðveiran ræðst á og fólki er sagt að gera. Samt er ekki rétt að áfellast þríeykið því þau eru bara að vinna vinnuna sína. Við hin þurfum að reyna að fara gætilega án þess að fyllast af ótta.

Ég held að það sé alveg rétt að taka þann möguleika með í reikninginn að einhver samsærisöfl hafi annaðhvort komið þessum vírus í dreifingu og að þau magni óttann eða spili á hann, en ég treysti samt þríeykinu í því að þau vilji okkur allt það bezta, og að þau hafi mikið vit á þessum málum.

Fyrir Ölmu og Þórólfi vakir held ég að stórum hluta að spítalarnir geti sinnt hlutverki sínu, og þeirra aðgerðir held ég að skýrist út frá því. Fleiri myndu deyja óþarflega ef spítalarnir yfirfylltust eins og gerzt hefur í útlöndum. Þau vita að einungis með mótefni er hægt að stöðva svona plágu, og þá bara kannski, því hún getur stökkbreyzt eftir það.

Við þurfum ekki að vera einangruð eða hrædd, við höfum samfélagsmiðlana og okkar nánustu. Það er sigur í því fólginn að víkka út traustsvæðið en minnka það ekki, og jafnvel þegar við erum skikkuð í að vera í sóttkví eða einangrun getum við hugsað jákvætt og reynt að auka kærleika okkar, eins og þú bendir á. Ég er sammála því að yfirvöldin mega ekki nota þetta sem yfirvarp til að stjórna okkur, en að bjarga mannslífum, okkar sjálfu og annarra er þó göfugt og vonandi að þríeykið hafi það að aðalmarkmiði.

Það er líka annað við óttann, að vita hvað veldur honum. Hann getur bent okkur á sannleikann, því oft er ástæða fyrir honum, en ekki alltaf. 

Þegar einhver skrifar eitthvað jákvætt og uppbyggilegt vil ég sýna samstöðu og hrósa, og stundum vil ég mótmæla einhverju sem hneykslar mig.

Með kærleika og þakklæti sömuleiðis,

Ingólfur, Insol, tónlistarmaður með áhuga á allskonar andlegum málefnum.

Ingólfur Sigurðsson, 4.10.2020 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband